Á heimasíðu ASÍ kemur fram að raforkukostnaður hjá heimilum landsins hefur hækkað mikið frá því í ágúst 2011. Mest er hækkunin hjá viðskiptavinum Rarik dreifbýli/Orkusalan,en heildar raforkukostnaður þeirrra hefur hækkað um 8,6% m.v. 4.000 kWst. notkun á ári. Minnst er hækkunin hjá heimilum á svæði Norðurorku/Fallorku eða um 2,7% fyrir sömu notkun.
Allar dreifiveiturnar hafa hækkað gjaldskrána. Mesta hækkunin var hjá Rafveitu Reyðafjarðar en minnst hjá HS veitu. Verð raforku hefur ekki hækkað hjá öllum raforkusölum en aðeins Orkusalan, HS orka og Rafveita Reyðafjarðar hafa hækkað gjaldskrána um 6,2% og Orkuveita Reykjavíkur um 4,7%.
Raforkureikning heimilisins má skipta í tvo hluta. Annars vegar er greitt er fyrir flutning og dreifingu raforkunnar til þeirrar dreifiveitu sem hefur sérleyfi á viðkomandi landssvæði og hins vegar er greitt fyrir raforkuna sjálfa til þess sölufyrirtækis sem hver og einn kaupandi velur. Þannig greiðir heimili á Ísafirði ávallt Orkubúi Vestfjarða fyrir flutning og dreifingu á raforku en getur síðan t.d. valið að kaupa raforkuna af Orkuveitu Reykjavíkur.
Í neðangreindum dæmum er gert ráð fyrir að heimilið kaupi raforku af þeirri dreifiveitu sem hefur sérleyfi á flutningi og dreifingu hennar á viðkomandi landsvæði og þeim sölufyrirtækjum sem stofnuð hafa verið utan um raforkusöluna hjá viðkomandi dreifiveitu.
Sjá fréttina frá ASÍ í heild sinni hér.