Í gær fór fram fundur í svæðisráði Grenivíkur þar sem m.a. var kosinn svæðisfulltrúi og varamður hans. Róbert Þorsteinsson var einn í kjöri til svæðisfulltrúa og var hann því endurkjörin. Þórey Aðalsteinsdóttir sem verið hefur varasvæðisfulltrúi undanfarin ár gaf ekki kost á sér. Nýr varasvæðisfulltrúi var kjörinn Þorsteinn Þormóðsson.
Svæðisfulltrúar sitja í aðalstjórn félagsins fyrir hönd síns svæðis og eru varamenn sjálfkjörnir í trúnaðarráð.