Róbert áfram svæðisfulltrúi á Grenivík

Í gær fór fram aðalfundur svæðisráðs Grýtubakkahrepps þar sem Róbert Þorsteinsson var kosinn aftur sem svæðisfulltrúi svæðisráðsins, en hann bauð sig einn fram í stöðuna og var kjörin með lófaklappi. Þorsteinn Þormóðsson var aftur kjörinn varasvæðisfulltrúi og var hann einnig kjörin með lófaklappi. Svæðisfulltrúar sitja í aðalstjórn félagsins fyrir hönd síns svæðis og eru varamenn sjálfkjörnir í trúnaðarráð.

Á fundinum fór Björn formaður einnig yfir stöðuna sem uppi er í kjaraviðræðum og jafnframt fór hann aðeins yfir niðurstöður nýlegrar kjarakönnunar félagsins.