Í samkomulaginu felst launahækkun um að lágmarki 8.000 krónur fyrir fullt starf á mánuði. Greidd verður eingreiðsla við samþykkt samningsins uppá 14.600 krónur og í apríl 2015 greiðist önnur eingreiðsla að upphæð 20.000 krónur miðað við fullt starf. Lágmarkstekjur fyrir fullt starf eftir 4 mánuði eru 214.000 krónur.
Desemberuppbót verður 73.600 á árinu 2014 og orlofsuppbót verður 39.500 krónur.
Önnur atriði samningsins má kynna sér hér.
Samkomulagið sjálft sem og kjarasamning SGS og ríkisins má nálgast hér.