Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðalfundir deilda félagsins rafrænir í ár. Í kvöld verður aðalfundur Matvæla- og þjónustudeildar og mun hann hefjast kl. 19:30.
Á morgun verður aðalfundur Iðnaðar- og tækjadeildar og aðalfundur Opinberu deildarinnar verður á fimmtudaginn. Allir fundirnir munu hefjast kl. 19:30.
Félagsmenn sem ætla að mæta á fund þurfa að skrá sig hér fyrir neðan, til að hægt verði að senda viðkomandi hlekk á fundinn.
Þriðjudagur 2. febrúar
Miðvikudagur 3. febrúar
Fimmtudagur 4. febrúar
Rafrænn aðalfundur Opinberudeildar - skrá sig hér
Á fundunum verður kosið til tveggja ára um formann, ritara og þrjá meðstjórnendur í hverri deild fyrir sig.
Við mætum með fundinn til þín!
Verið virk í deildinni ykkar!