Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við ríkið hefst kl. 9:00 á morgun, miðvikudaginn 21. október, og stendur til miðnættis fimmtudaginn 29. október nk. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar verða kynntar daginn eftir. Atkvæðagreiðslan verður með rafrænum hætti og eru allir félagsmenn sem starfa eftir samningi SGS við ríkið á kjörskrá. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu geta kosið á skrifstofum félagsins.
Til að greiða atkvæði fara félagsmenn inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins (www.sgs.is) og smella á „Kjarasamningar 2015“ á forsíðunni. Þar getur viðkomandi greitt atkvæði með því að nota lykilorð sem hann fær sent í pósti. Allir kosningabærir félagsmenn fá sendan kynningarbækling í pósti í tengslum við atkvæðagreiðsluna, en bæklingurinn inniheldur m.a. lykilorð viðkomandi. Bæklingurinn var sendur út í dag (20. október) og ætti að berast fólki á morgun eða næstu daga.