Ráðstefna SGS um hlutastörf og vaktavinnu

Starfsgreinasamband Íslands boðar til ráðstefnu þann 12. janúar nk. um lífsgæði og kjör starfsfólks í hlutastörfum og vaktavinnu. Sjónum verður beint að því hvort starfsfólk velur sér sjálft þessi störf og hvaða áhrif störf sem eru ekki með hefðbundinn vinnutíma hafa á lífsgæði fólks. Sjö trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem vinna í vaktavinnu munu sitja ráðstefnuna fyrir hönd félagsins.

Hvað getur starfsfólk gert til að draga úr streitu í vaktavinnu?

Getur fólk valið að vinna fulla vinnu eða eru hlutastörf dulbúin kjaraskerðing?

Hvernig eru kynjahlutföll meðal starfsfólks með óhefðbundinn vinnutíma?

Hefur óhefðbundinn vinnutími áhrif á heilsu starfsfólks og þá hvernig?

Þessum spurningum og fleiri verður velt upp á ráðstefnunni en dagskráin er blanda af reynslusögum starfsfólks, kynning á niðurstöðum nýlegra rannsókna og umfjöllun sérfræðinga um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum óhefðbundins vinnutíma. Ráðstefnan fer fram á Hotel Natura og hefst hún klukkan 12:30 og stendur til 16:30.

Dagskrá
12:30 Setning
12:40 Innlegg frá félagsmanni
12:50 Kynning á niðurstöðum norrænnar rannsóknar um hlutastörf, tíðni þeirra og ástæður.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði hjá Háskóla Íslands
13:35 Tímabundin störf og heilsufar á Íslandi: Niðurstöður úr heilsukönnun Hagstofu Íslands.
Kolbeinn Hólmar Stefánsson, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands
14:20 Kaffihlé
14:40 Innlegg frá félagsmanni
14:50 Nýjustu rannsóknir á áhrifum streitu á heilsu og hver eru úrræðin!
Ingibjörg Jónsdóttir, prófessor og yfirmaður Streiturannsóknastofnunar Gautaborgar
15:35 Leiðir til að líða betur í vaktavinnu
Lára G. Sigurðardóttir læknir og fræðslustjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands
16:20 Samantekt á niðurstöðum og ráðstefnuslit

Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks hér.