Ráðist verður í harðar aðgerðir gegn ráðningu sjálfboðaliða

Mikið hefur verið fjallað um sjálfboðaliðastarf að undanförnu og í Fréttablaðinu í dag er talað við Björn Snæbjörnsson, formann félagsins, vegna málsins. Þar segir Björn m.a. að mikið hafi verið hringt því fólk vill hafa þessa hluti í lagi hjá sér og er að biðja um leið­ beiningar til að gera hlutina rétt.

Í fréttinni segir jafnframt að stéttarfélagið ætli að grípa til aðgerða vegna ólaunaðs starfsfólks í fyrirtækjum í byggðarlaginu. Í gær sagði Fréttablaðið frá því að tugir fyrirtækja, mörg í ferðaþjónustu auglýsi eftir sjálfboðaliðum til starfa á erlendu síðunni workaway.info og birti skjáskot af auglýsingu gistiheimilis á Akureyri. Auglýsingunni hefur nú verið kippt út af síðunni. „Þótt fyrirtæki kippi auglýsingum núna út af síðunni þá erum við búin að vera að kortleggja hvaða fyrirtæki þetta eru og við munum fara í eftirlitsferðir og kanna málin. Við höfum skráð hjá okkur þau fyrirtæki sem voru með auglýsingu á síðunni á okkar svæði,“ sagði Björn við Fréttablaðið og bætti við að hann haldi að fólk sé ekki meðvitað um hvenær það er í lagi að fá til sín sjálfboðaliða og hvenær ekki. Mörkin séu þó skýr. Fyrirtæki í ágóðarekstri geti ekki ráðið til sín sjálfboðaliða. „Einhvern veginn held ég að menn blandi þessu öllu saman og pæli ekkert í því hvernig þetta er gert. Við munum fjölga eftirlitsferðum okkar vegna þessa,“ segir Björn.

Fleiri stéttarfélög víða um land ætla í átak gegn brotum sem felast í ólaunaðri vinnu í efnahagslegri starfsemi. Jafnframt hefur Alþýðusamband Íslands kallað eftir samstarfi við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins um að uppræta slíka brotastarfsemi. Þá hefur Alþýðusambandið óskað eftir ákvarðandi bréfi frá ríkisskattstjóra um þetta efni því ólaunuð vinna við efnahagslega starfsemi þýði að atvinnurekendur sem nota hana hagnist á kostnað samneyslunnar. „Ég staðfesti að ASÍ hefur óskað eftir sjónarmiðum ríkisskattstjóra varðandi mál sem hafa verið að koma upp í vaxandi mæli síðustu ár. Þetta mál er til athugunar hjá embættinu,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri við Fréttablaðið. Skúli Eggert segir eftirlitsmenn ríkisskattstjóra og eftirlitsmenn ASÍ hafa verið í samstarfi um nokkurt skeið vegna skattsvika þar sem þessi mál hafi komið til tals.