Ráðherra kíkti í heimsókn

Fyrr í dag kom Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra í heimsókn á skrifstofu félagsins á Akureyri og heilsaði m.a. upp á verkfallsverði sem voru þá stundina inni til að hvíla lúin bein, enda fjöldi þeirra búnir að vera á ferðinni frá því snemma í morgun.

Hún hafði mikinn áhuga á að vita hvernig hefði gengið og ákvað því að kynna sér stöðu mála hjá félaginu þar sem hún var stödd á Akureyri í embættiserindum.