PACTA lögmenn - félagsmenn fá 15% afslátt

Rétt er að minna á samning sem Eining-Iðja er með við PACTA lögmenn, en þeir sjá  um alla lögfræðiþjónustu fyrir félagið. Starfsmönnum félagsins er samkvæmt samningnum heimilt að bjóða félagsmönnum sínum að leita viðtals og ráðgjafar hjá PACTA vegna ágreinings þeirra við vinnuveitendur, innheimtu launakrafna, skaðabótamála eða annarra mála, sem starfsmenn Einingar-Iðju telja rétt að bjóða viðkomandi félagsmanni. Eining-Iðja ber kostnað af þeirri þjónustu sem unnin er fyrir félagsmanninn og ekki fæst greiddur úr hendi vinnuveitanda, þrotabús hans, ábyrgðasjóði launa eða af öðrum aðilum.

Í samningum er einnig kveðið á um að félagsmaður í Einingu Iðju, sem leitar til PACTA án þess að félagið hafi milligöngu þar um, skuli fá 15% afslátt af gildandi gjaldskrá PACTA á hverjum tíma.

Lögmannsþjónusta í Fjallabyggð og á Dalvík

Pacta lögmenn leigja aðstöðu á skrifstofum félagsins í Fjallabyggð og á Dalvík. Þeir verða þar næst með viðveru 13. desember 2017. Lögfræðingarnir verða á Siglufirði milli kl. 9 og 13 og á Dalvík á milli kl. 14 og 17. Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt. ATH! þessi þjónusta er fyrir alla, ekki bara félagsmenn Einingar-Iðju.

Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, hdl. og Jón Stefán Hjaltalín, hdl. munu sinna viðverunni. Ná má í þá á netföngin asgeirorn@pacta.is og jonhjaltalin@pacta.is. Lögfræðingarnir verða á Siglufirði milli kl. 9 og 13 og á Dalvík á milli kl. 14 og 17. Næsta viðvera á skrifstofunum hjá þeim verður.

  • 13. desember 2017
  • 17. janúar 2018
  • 14. febrúar 2018
  • 14. mars 2018
  • 11. apríl 2018
  • 16. maí 2018
  • 13. júní  2018

ATH! þessi þjónusta er fyrir alla, ekki bara félagsmenn Einingar-Iðju.

Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt. 

Nánari upplýsingar um fyrirtækið má fá á heimasíðu PACTA