PACTA lögmenn - félagsmenn fá 15% afslátt

Rétt er að minna á samning sem Eining-Iðja er með við PACTA lögmenn, en þeir sjá  um alla lögfræðiþjónustu fyrir félagið. Starfsmönnum félagsins er samkvæmt samningnum heimilt að bjóða félagsmönnum sínum að leita viðtals og ráðgjafar hjá PACTA vegna ágreinings þeirra við vinnuveitendur, innheimtu launakrafna, skaðabótamála eða annarra mála, sem starfsmenn Einingar-Iðju telja rétt að bjóða viðkomandi félagsmanni. Eining-Iðja ber kostnað af þeirri þjónustu sem unnin er fyrir félagsmanninn og ekki fæst greiddur úr hendi vinnuveitanda, þrotabús hans, ábyrgðasjóði launa eða af öðrum aðilum.

Í samningum er einnig kveðið á um að félagsmaður í Einingu Iðju, sem leitar til PACTA án þess að félagið hafi milligöngu þar um, skuli fá 15% afslátt af gildandi gjaldskrá PACTA á hverjum tíma.

Lögmannsþjónusta í Fjallabyggð og á Dalvík

Pacta lögmenn leigja aðstöðu á skrifstofum félagsins í Fjallabyggð og á Dalvík. Jón Stefán Hjaltalín, hdl. mun sinna viðverunni að mestu leyti. Hann er með netfangið jonhjaltalin@pacta.is. Lögfræðingarnir verða á Siglufirði milli kl. 9 og 13 og á Dalvík á milli kl. 14 og 17. Næsta viðvera á skrifstofunum hjá þeim verður.

ATH! þessi þjónusta er fyrir alla, ekki bara félagsmenn Einingar-Iðju: 

  • 12. desember 2016
  • 17. janúar 2017
  • 14. febrúar 2017
  • 14. mars 2017
  • 12. apríl 2017
  • 16. maí 2017
  • 13. júní  2017

Tímapantanir í síma 440 7900. Fyrsta viðtal er frítt. 

Nánari upplýsingar um fyrirtækið má fá á heimasíðu PACTA