Óþolandi óvissa um orlofsuppbót eldri borgara og öryrkja

ASÍ lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri óvissu sem uppi er um orlofsuppbót almannatrygginga til lífeyrisþega. Venjan er að ráðherra gefi út reglugerð um áramót um orlofs- og desemberuppbót á komandi ári. Reglugerðin fyrir árið 2017 hefur enn ekki verið undirrituð. Þessi óvissa fyrir eldri borgara og öryrkja er algjörlega óþolandi og ráðherra verður að kippa þessu í liðinn strax.