Orlofshús um páska

Eins og undanfarin ár þá verða orlofsíbúðir og orlofshús félagsins úthlutað um páskana. Byrjað er að taka við umsóknum og verður hægt að sækja um til 15. febrúar og svo verður úthlutað í vikunni á eftir, eftir punktainneign viðkomandi.

Hægt er að sækja um sex íbúðir í Reykjavík og eina á Egilsstöðum. Einnig er hægt að sækja um orlofshús í Tjarnargerði, Svignaskarði eða á Illugastöðum.

Það eina sem þarf að gera er að hringja í síma 460 3600 eða kíkja við á einhverja af skrifstofum félagsins og sækja um. Einnig er hægt að sækja um rafrænt á vef félagsins.