Orlofsblaðið er komið á netið

Orlofsblað félagsins er komið á netið og má lesa það hér.

Blaðið er farið í prentun en það verður borið út miðvikudaginn 17. mars nk. með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 32 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2021, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Í blaðinu er einnig umfjöllum um aðalfundi deilda, styttingu vinnutíma, aðalfundi svæðisráða, greiðslur úr félagsmannasjóði og margt fleira.