Orlofsblaðið borið út í vikunni

Nú er verið að prenta og ganga frá orlofsblaði félagsins og verður það borið út næsta miðvikudag með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 32 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2019, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Í blaðinu er einnig sagt frá stöðunni sem uppi er í samningamálum félagsins og þar sem ríkir óvissa með framhaldið þá má finna í því umfjöllum um hvað er verkfall og verkbann og hvenær má fara í verkfall, einnig er fjallað um reglur félagsins um fjárhagsaðstoð vegna verkfalla og verkbanna. Þá má líka t.d. finna umfjöllum um aðalfundi svæðisráði, aðalfundi deilda og réttindi eldri félaga eftir að þeir hætta á vinnumarkaði.

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér miðvikudaginn 13. mars nk. en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.