Orlofsblað félagsins var borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu í gær. Í blaðinu er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2013, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.
Félagsmenn eru einnig minntir á réttindi sín varðandi orlof, orlofstöku og orlofsuppbót. Þá er sagt frá orlofsferðum sumarsins, sem eru þrjár að venju, en nú stendur yfir skráning í ferðirnar.
Ef þú býrð á félagssvæðinu og fékkst Dagskrána en ekki blað félagsins hafðu þá samband við Ásprent í síma 4 600 700
Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.