Í blaðinu, sem er 32 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2016, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.
Félagsmenn eru einnig minntir á réttindi sín varðandi orlof og orlofsuppbót. Þá er sagt frá orlofsferðum ársins, sem eru fjórar.
Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.
Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.