Orlofsblaðið borið út í dag

Nú er búið að prenta og ganga frá orlofsblaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum í dag, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu fá blaðið sent til sín með póstinum.

Í blaðinu, sem er 32 síður, er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2015, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.

Félagsmenn eru einnig minntir á réttindi sín varðandi orlof, orlofstöku og orlofsuppbót. Þá er sagt frá orlofsferðum sumarsins, sem eru tvær í ár.

Í blaðinu má einnig finna umfjöllun um hvað er verkfall og verkbann og hvenær má fara í verkfall? Einnig er fjallað um reglur félagsins um fjárhagsaðstoð vegna verkfalla eða verkbanna. 

Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.