Orlofsblað félagsins verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu í dag. Í blaðinu er fjallað er um þá orlofsmöguleika sem félagsmönnum standa til boða á árinu 2014, en megináhersla er lögð á að kynna þau orlofshús og orlofsíbúðir sem félagið hefur til umráða og leigu til félagsmanna á komandi sumri. Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öllum landshlutum.
Félagsmenn eru einnig minntir á réttindi sín varðandi orlof, orlofstöku og orlofsuppbót. Þá er sagt frá orlofsferðum sumarsins, sem eru þrjár að venju, en nú stendur yfir skráning í ferðirnar.
Blaðið er komið á netið og má lesa það hér.