Örfá sæti laus í innanlandsferðina

Úr innanlandsferð 2013
Úr innanlandsferð 2013

Vert er að benda á að örfá sæti eru laus í innanlandsferð félagsins, Austurland-Loðmundarfjörður-Mjóifjörður, sem verður dagana 11. til 14. ágúst nk.

Gist verður í Skipalæk í Fellabæ í þrjár nætur.

  • Dagur 1. Ekið með allskonar útúrdúrum austur á Egilsstaði. 
  • Dagur 2. Farið verður í Loðmundarfjörð og margt skoðað á báðum leiðum. 
  • Dagur 3. Farið verður farið niður í Mjóafjörð og út á Dalatanga. 
  • Dagur 4. Ekið um Hellisheiði til Vopnafjarðar og þaðan til Þórshafnar og nýja veginn um sléttuna til Húsavíkur og þaðan til Akureyrar.

Verð kr. 38.000 á mann. Innifalið er allur akstur, svefnpokagisting og leiðsögn. Grillað verður eitt kvöld og þá lagt til grillkjöt og kartöflusalat. Að öðru leyti verður fólk að nesta sig sjálft.

Skráning og nánari upplýsingar má fá á skrifstofu félagsins á Akureyri og í síma 460 3600.