Orðabók fyrir ungt fólk á vinnumarkaði

Unga fólkið í Hinu húsinu sem tók þátt í fyrra í verkefninu "Skyldurækin" setti saman hagnýta orðabók fyrir ungt fólk á vinnumarkaði. Orðabókin er birt á vefsíðunni áttavitinn.is. Áttavitinn er upplýsingagátt miðuð að ungu fólki á aldrinum 16-25 ára. Á síðunni má finna hagnýtan fróðleik sem viðkemur hinum ýmsu sviðum lífsins.

Orðabókina má sjá hér.