Opnum aftur 13. janúar - hvetjum áfram til rafrænna samskipta

Við munum opna aftur skrifstofur félagsins miðvikudaginn 13. janúar 2021 eftir lokun undanfarna mánuði vegna COVID-19. 

Við bendum félagsmönnum á að fjölda erinda við félagið er hægt að sinna í gegnum síma og með tölvupósti. Sími félagsins er 460 3600 en einnig má senda póst á ein@ein.isNetföng einstakra starfsmanna.

Kæru félagar. Við þökkum fyrir þolinmæðina og sendum ykkur hrós hversu vel hefur tekist í samskiptum við félagið á þessum veiru tímum.

Á skrifstofum félagsins eru allir snertifletir sótthreinsaðir reglulega og eftir þörfum. Þeir sem nauðsynlega þurfa að koma er bent á að við innganga eru sprittbrúsar og eiga allir að spritta á sér hendurnar áður en gengið er að afgreiðsluborðum. Við afgreiðsluborð þarf að hafa í huga að í gildi er tveggja metra fjarlægðarregla. 

Virðum áfram allar reglur sóttvarnalæknis þar til endanlega hefur verið slakað á þeim. Skv. sóttvarnalækni munu eftirfarandi aðgerðir skila tilætluðum árangri að koma í veg fyrir hópsýkingar og frekari útbreiðslu.

  • Handþvottur!
  • Handspritt!
  • Hreinsa áhöld og fleti sem maður veit ekki hverjir hafa snert!
  • Forðast fjölmenni!

Eining-Iðja would like to advise our members to use telephone or email in communications with the union - instead of coming to our offices.  Our telphone is 460 3600 and our email ein@ein.is.  By communicating with phone and email instead of direct contact,  we might delay the spreading of the corona virus.

Eining-Iðja chciałby doradzić naszym członkom, aby w komunikacji ze związkiem używali telefonu lub poczty elektronicznej – w miejsce stawiania się w biurach. Nasz telefon to 460 3600, a nasz e-mail ein@ein.is. Komunikując się telefonicznie i pocztą e-mail zamiast bezpośredniego kontaktu, możemy opóźnić rozprzestrzenianie się wirusa korony.

Þeir sem finna fyrir einhverjum einkennum sem geta bent til þess að viðkomandi sé smitaður, hafa verið á ferðalagi á skilgreindum áhættusvæðum erlendis og þeir sem hafa umgengist fólk sem svo hefur greinst með COVID-19 eru vinsamlegast beðnir um að koma EKKI á skrifstofur félagsins.