Opnað kl. 10 fyrir laus orlofshús og íbúðir

Í dag kl. 10:00 verður opnað á Orlofsvef félagsins fyrir það sem enn verður laust í orlofskostum sumarsins.

Nú gildir fyrstur kemur, fyrstur fær.

Einnig verður hægt að hafa samband við skrifstofur félagsins í síma 460 3600 til að fá upplýsingar um lausar vikur.