Opnað fyrir vetrarleiguna í næstu viku

Um hádegi miðvikudaginn 1. ágúst nk. verður opnað fyrir bókanir á orlofshúsum og íbúðum næsta vetur. Vetrarleigutímabilið hefst 1. september og stendur til 1. júní, en þá eru boði orlofshús á Illugastöðum, Tjarnargerði, Svignaskarði og Einarsstöðum og orlofsíbúðir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu og á Egilsstöðum.

Auðveldast er að panta á félagavefnum, en auðvitað er hægt að hringja í skrifstofur félagsins og panta hús eða bústað.

Nánar má lesa um vetrarleiguna hér.