Opinn fundur um öryggi kvenna í umönnunar- og þjónustustörfum

Fundurinn fer fram á Hótel KEA
Fundurinn fer fram á Hótel KEA

Vert er að benda á fund sem verður í hádeginu í dag, 24. október sem einmitt er kvennafrídagurinn. Þá mun Jafnréttisstofa, í samstarfi við Akureyrarbæ, standa að opnum fundi á Hótel KEA um stöðu kvenna í umönnunar- og þjónustustörfum með sérstaka áherslu á kynbundna og kynferðislega áreitni.

Á fundinum verða haldin þrjú erindi sem fjalla um viðfangsefnið með ólíkum hætti. Jóhanna Berglind Bjarnadóttir og Katrín Björnsdóttir, frá Akureyrarbæ, munu ræða kynferðislega áreitni í umönnunarstörfum. Harpa Ólafsdóttir, frá stéttarfélaginu Eflingu, flytur erindi sem nefnist „Eru línurnar í lagi?“. Þá munu þær Margrét Helga Erlingsdóttir og Elín Inga Bragadóttir greina frá dæmum um framkomu við konur í þjónustustörfum og kynna framtak þeirra „kynlegar athugasemdir“.

Húsið opnar kl. 11:45 en dagskráin hefst kl. 12:00

SJÁ DAGSKRÁ HÉR