Iðnaðar- og tækjadeild Einingar-Iðju stendur fyrir opnum fundi um málefni bílstjóra miðvikudaginn 27. febrúar, kl. 20:00 í sal Einingar-Iðju, 2. hæð Skipagötu 14 á Akureyri.
Sævar Ingi Jónsson, deildarstjóri umferðareftirlits Vegagerðarinnar, mætir á fundinn og fjallar um ýmiss málefni sem tengjast bílstjórum. Hann mun jafnframt svara fyrirspurnum fundarmanna.
Félagið hvetur alla sem þessi mál varðar að fjölmenna á fundinn.