Opinn fræðslufundur fyrir bílstjóra í kvöld

Í kvöld, miðvikudaginn 22. febrúar, stendur Eining-Iðja fyrir opnum fræðslufundi fyrir bílstjóra. Fulltrúi frá Samgöngustofu mun flytja erindi um endurmenntun bílstjóra og svara fyrirspurnum fundarmanna.

Fundur hefst kl. 20 og verður í salnum á 4. hæð Alþýðuhússins á Akureyri.

Stjórn Iðnaðar- og tækjadeildar félagsins hvetur alla bílstjóra til að mæta, óháð félagsaðild.