Nú er opið fyrir umsóknir á nýjum staðsetningum, þ.e. Hallgerðargötu (við Kirkjusand), Hraunbæ, Silfratjörn í Úlfarsárdal og á Gudmannshaga á Akureyri. Upphaf leigu verður haust 2020 og vetur 2020/2021. Opið er fyrir umsóknir út mars 2020.
Til að koma til greina fyrir úthlutun þarf að senda inn umsókn í gegnum „mínar síður“ á heimasíðu Bjargs.
Hámarksviðmið um tekjur og eignir leigutaka hafa nýlega hækkað. Sjá nánar hér um skilyrð fyrir úthlutun:
Nánari upplýsingar um íbúðirnar sem nú eru í boði má finna á heimasíðu Bjargs.
Umsókn um íbúð hjá Bjargi gerist í tveimur skrefum og ekki er nóg að vera með skráningu á biðlista, heldur þarf að haka við staðsetningu/staðsetningar sem óskað er eftir.