Ókeypis námskeið fyrir konur - síðasti skráningardagur í dag

Konur taka af skarið! Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagsmenn stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaga og er þeim að kostnaðarlausu. Þátttakendur þurfa að skrá sig á námskeiðið og í dag, 8. nóvember,  er síðasti skráningardagur.

Námskeiðið hefst kl. 10:00  laugardaginn 10. nóvember stendur til kl. 17:00 og er haldið í sal Einingar-Iðju við Skipagötu á Akureyri.

Á námskeiðinu verða eftirfarandi málefni tekin fyrir:

  1. Að bjóða kynjakerfinu birginn. Katrín Björg Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
  2. Staða verkalýðsbaráttunnar í dag. Drífa Snædal, forseti ASÍ. 
  3. Uppbygging verkalýðsfélaganna. Drífa Snædal, forseti ASÍ.
  4. Leiðtogaþjálfun. Viktor Ómarsson, JCI Sproti.
  5. Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri. Viktor Ómarsson, JCI Sproti.
  6. Að starfa í verkalýðshreyfingunni. Drífa Snædal, forseti ASÍ. 

Athugið að skráning þarf að berast í síðasta lagi í dag, 8. nóvember, á netfangið kristinheba@akak.is
eða í síma 461 4006.