Af þeim 30 lausasölulyfjum sem borin eru saman á milli ára hafði meðalverð á 17 þeirra lækkað. Sem dæmi um vöru þar sem meðalverð hefur lækkað má nefna að Nurofen Apelsin (40 mg./ml. - 50 ml.) sem er íbúprófen fyrir börn, en meðalverðið í maí 2013 var 937 kr. en er nú 895 kr. sem er 4% lækkun. Af öðrum vinsælum vörum apótekanna má nefna að meðalverð á ibúxin rabit (400 mg. - 30 stk.) hefur lækkað um 6% og nikótíntyggjóið Nicotinell lakrids (24 stk. – 2 mg.) hefur lækkað um 4%.
Meðalverð hefur hækkað í þriðjungi tilvika af þeim vörum sem bornar eru saman. Má nefna að meðalverð á vinsælli vöru eins og frunsukremi hefur hækkað, á Zovir (2 gr.) um 2% og Vectavir (2 gr. ) um 4% og nefúðinn Otrivin ukonserveret og Otrivin Menthol (10 ml.) hefur hækkað um 1%.
Rétt er að benda á að gengi krónunnar hefur styrkst um 11% frá upphafi árs 2013 þar til nú og því hefði lyfjaverð átt að lækka enn frekar.
Samanburðurinn var gerður í eftirtöldum apótekum: Apóteki Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11; Apótekarinn; Apótekinu, Furuvöllum 17; Garðs Apóteki, Sogavegi 108; Lyf og heilsu; Lyfju; Lyfjavali; Lyfjaveri, Suðurlandsbraut 22; Reykjavíkur Apóteki, Seljavegi 2; Rima Apóteki, Langarima 21; Skipholts Apóteki, Skipholti 50B; Urðarapóteki, Vínlandsleið 16; Akureyrarapóteki, Kaupangi við Mýrarveg; Apóteki Vesturlands, Smiðjuvöllum 32, Akranesi; Siglufjarðar Apóteki, Norðurgötu 4B; Apóteki Garðabæjar, Litlatúni 3; Apóteki Suðurnesja, Hringbraut 99 og Austurbæjar Apóteki, Ögurhvarfi 3.
Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Óheimilt er að vitna í þessa könnun í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.