Nýtt fréttabréf ASÍ komið út

Í nýju fréttabréfi ASÍ skorar forseti Alþýðusambandsins meðal annars á Alþingi að leiðrétta kjör aldraðra, öryrkja og atvinnulausra. Einnig er farið yfir þær leiðu niðurstöður að færri feður takafæðingarorlof en fyrir hrun. Ný reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum var birt 4. nóvember síðastliðinn og Eðvarð afturhaldsmaður á svo sinn stað með sínar hrakfarir.