Nýr þjónustusamningur við Símann

Konráð Þór frá Símanum og Björn formaður félagins undirrita nýja samninginn
Konráð Þór frá Símanum og Björn formaður félagins undirrita nýja samninginn

Í morgun var gengið frá nýjum þjónustusamningi við símann. Eining-Iðja hefur lengi verið í símaviðskiptum við Símann og verið í fyrirtækjaþjónustu hjá þeim frá árinu 2014.

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir að Síminn hafi veitt félaginu faglega og góða þjónustu undanfarna áratugi. "Fyrirtækjalausnir Símans hafa séð til þess að símkerfið virkar eins og það á að gera enda er mikilvægt að félagsmenn geti verið í góðu sambandi við félagið ef þeir hafa ekki tök á að mæta á skrifstofurnar."