Nýr þjónustufulltrúi ráðinn

Rut Pétursdóttir hefur verið ráðin þjónustufulltrúi hjá félaginu og verður hún með aðsetur á skrifstofunni á Akureyri.

Hún var ráðin úr hópi 37 umsækjanda sem sóttu um stöðuna.

Undanfarin ár hefur hún starfað á Icelandair Hótel Akureyri sem veitingastjóri hótelsins.

Rut mun hefja störf 1. nóvember nk.

Eining-Iðja býður Rut velkomna í starfsmannahópinn.