Nýr stofnanasamningur við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar

Eining-Iðja hefur skrifað undir nýjan stofnanasamning við Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar sem gildir frá 1. mars sl. Samkomulagið byggir á kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs annars vegar og SGS hins vegar frá 1. apríl 2014.

Skv. samningnum hækkar grunntaxti um einn launaflokk, samninginn í heild má finna hér.