Nýr starfsmaður hóf störf í dag

Hafdís E. Ásbjarnardóttir hóf störf hjá félaginu í dag. Hún var ráðin úr hópi 61 umsækjanda sem sóttu um stöðu þjónustufulltrúa hjá félaginu með aðsetur á Akureyri. Hafdís er með netfangið hafdis@ein.is.

Hafdís útskrifaðist með ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri 2014. Hún hefur meðal annars starfað hjá starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar og hjá Landsbankanum.

Eining-Iðja býður Hafdísi velkomna til starfa.