Nýr starfsmaður

Rósfríð Kristín Áslaugsdóttir hefur verið ráðin skráningar- og innheimtustjóri hjá félaginu. Hún var ráðin úr hópi 21 umsækjanda sem sóttu um stöðuna.

Rósfríð útskrifaðist sem Bachelor of Science í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2002.

Undanfarin þrjú ár hefur hún starfað á Keahótel ehf. á Akureyri sem launa- og bókhaldsfulltrú.

Rósfríð mun hefja störf um næstu áramót.

Eining-Iðja býður Rósfríð velkomna í starfsmannahópinn.