Nýr samningur við TDK felldur í atkvæðagreiðslu

Um miðjan desember var gengið frá nýjum samningi við TDK Foil Iceland ehf., vegna félagsmanna sem þar starfa í vaktavinnu, eftir samningaviðræður undanfarna mánuði.

Samningurinn var kynntur starfsmönnum á rafrænan hátt á tveimur fundum og eftir það hófst rafræn atkvæðagreiðsla um samninginn. Kosningunni lauk 23. desember sl. og var nýji samningurinn felldur með miklum meirihluta. Þannig að samningaviðræður munu hefjast við fyrirtækið á ný í byrjun næsta árs.