Nýr samningur við SA – tveir fundir í dag

Fundur á Akureyri verður á hótel KEA
Fundur á Akureyri verður á hótel KEA

Í dag fara fram tveir kynningarfundir á nýjum kjarasamningi félagsins við Samtök atvinnulífsins.
Fyrri fundurinn verður kl. 17:00 í Mímisbrunni á Dalvík og sá seinni kl. 20:00 á Hótel KEA á Akureyri.

Búið er að halda fundi Í Fjallabyggð, Hrísey og Grenivík, en vegna tafa á flugi var ekki hægt að halda fund í Grímsey í gær eins og til stóð.

Þessir fundir eru fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum, ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum.

Dagskrá:
1. Kynning á nýjum kjarasamningi.
2. Önnur mál.

Félagar, fjölmennum!