Þann 11. apríl apríl sl. var undirritaður nýr samningur við Mjólkursamsöluna vegna verkafólks og bílstjóra í fjórum aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins: Bárunnar stéttarfélags, Stéttarfélagi Vesturlands, AFLi starfsgreinafélagi og Einingu-Iðju. Samningurinn snertir því þá sem starfa utan höfuðborgarsvæðisins og eru félagar í SGS.
Margir mismunandi samningar hafa verið í gangi á hverjum stað fyrir sig og hafa staðið yfir viðræður í marga mánuði um að samræma samningana. Það tókst á endanum. Báðum aðalkröfum fulltrúa starfsfólks var mætt, þ.e. að hækka bílstjóra um launaflokka og samræma samninginn. Önnur ákvæði héldust nær óbreytt að innihaldi.
Samningurinn var kynntur starfsfólki á Selfossi, í Búðardal, á Egilsstöðum og á Akureyri þann 19. apríl nk. og var kosið um hann samdægurs. Atkvæði voru talin upp úr einum sameiginlegum potti þann 21. apríl.
Niðurstaðan:
Á kjörskrá voru 187
Greidd atkvæði voru 120
Kosningaþátttaka var 64%
Já sögðu 69
Nei sögðu 48
Auð atkvæði voru 3
Samningurinn er því samþykktur með 57,5% greiddra atkvæða.