Nýr samningur við Becromal samþykktur

Skrifað var undir nýjan samning við Becromal mánudaginn 4. júní sl. Samningurinn var kynntur félagsmönnum á tveimur fundum 6. júní og hófst þá atkvæðagreiðsla um hann, en henni lauk kl. 16 í gær, þriðjudaginn 12. júní.

Mjög góð þátttaka var í atkvæðagreiðslunni. 59 voru á kjörskrá en 51 greiddu atkvæði. 26 sögðu já, 25 sögðu nei og því var samningurinn samþykktur.