Nýlega var skrifað undir nýjan kjarasamning við sveitarfélögin með fyrirvara um samþykki félagsmana í atkvæðagreiðslu. Í dag verður hann kynntur á Grenivík og á Akureyri og næsta miðvikudag á Dalvík ogí Fjallabyggð. Þessir fundir eru fyrir félagsmenn sem starfa hjá sveitarfélögunum því ekki er enn búið að semja fyrir þá sem starfa hjá ríkinu. Allir sem starfa eftir samningnum fá sendan kynningarbækling frá SGS.
Sýnum ábyrga afstöðu! Mætum og kynnum okkur samninginn áður en við greiðum atkvæði.
Mánudagur 27. janúar
Miðvikudagur 29. janúar
Rafræn atkvæðagreiðsla
Atkvæðagreiðslan stendur yfir frá kl. 12:00 mánudaginn 3. febrúar til kl. 12:00 sunnudaginn 9. febrúar.
Félagsmenn sem ekki fá kjörgögn í hendur og starfa eftir kjarasamningnum geta mætt á einhverja af skrifstofum félagsins og kært sig inn á kjörskrá.
Samningurinn gildir frá 1. janúar 2020 til 30. september 2023.
Helstu atriði samningsins, sem taka gildi ef hann verður samþykktur, eru sem hér segir:
Á næstu mánuðum verður lögð vinna í að leiðrétta og endurskoða fyrirkomulag ráðninga tímavinnufólks. Þá verður stofnaður sérstakur Félagsmannasjóður með það markmið að stíga skref til jöfnunar lífeyrisréttinda milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og opinberra starfsmanna. Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 1,5% af heildarlaunum félagsmanna og er úthlutað úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum verður nú í ár og fá allir félagsmenn í fullu starfi greiddar 61.000 kr. Starfsmenn sem eru ekki í fullu starfi fá greiðslu miðað við starfstíma og starfshlutfall.
SGS mun áfram taka fullan þátt í starfshópi aðila opinbera vinnumarkaðarins sem fjallar um fyrirkomulag vaktavinnu og starfskjör vaktavinnufólks. Nái starfshópurinn niðurstöðu um frekari breytingar munu samningsaðilar taka upp viðræður um með hvaða hætti þær verða innleiddar. Hægagangurinn sem hefur verið í þeirri vinnu er alfarið á ábyrgð samningarnefndar ríkisins og ekki hægt bíða þeirrar niðurstöðu til að okkar fólk fái löngu tímabærar launahækkanir.
Tekið er upp nýtt ákvæði að félagsmenn sem starfað hafa samfellt í 3 ár geta fengið launað leyfi í samtlas í þrjá mánuði til að stunda viðurkennt starfsnám.