Nýr kjarasamningur við NPA miðstöðina

Fyrr í dag undirritaði Starfsgreinasamband Íslands nýjan kjarasamning við NPA miðstöðina. Samningsviðræður hafa staðið yfir í dágóðan tíma og liggur mikil og góð samvinna samningsaðila að baki samningsins. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. desember 2018. Tekur hann til vinnu félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands í störfum sem aðstoðarfólk fatlaðs fólks og tekur mið af aðalkjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands við Samtök atvinnulífsins og hefur sömu samningsforsendur og hann.