Valgeir Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SÍMEY og tekur við á komandi haustönn. Valgeir starfaði áður sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun á Norðurlandi eystra. Hann hefur starfað hjá SÍMEY í 10 ár sem verkefnastjóri, m.a. sem staðgengill framkvæmdastjóra og leysti af sem slíkur í sex mánuði 2011 og 2012.
Valgeir er öllum hnútum kunnugur hjá miðstöðinni, sérfræðingur í sí- og endurmenntun í atvinnulífinu, raunfærnimati og Markviss þarfagreiningu auk þess að vera bæði menntaður náms- og starfsráðgjafi og markþjálfi.