Nýja húsið í Svignaskarði að fara í útleigu

Í haust ákvað stjórn félagsins að fjárfesta í nýju orlofshúsi í Svignaskarði í Borgarfirði, en fyrir á félagið eitt hús á svæðinu. Húsið var keypt fullbúið að utan var og pallurinn klár, einungis átti eftir að vinna í því að innan. Áætlanir gerðu ráð fyrir að húsið yrði tilbúið í lok nóvember og að það færi í útleigu í byrjun desember. Það gekk eftir og fékk félagið húsið afhent nýlega og er það nú loks tilbúið til útleigu, en hægt verður að leigja það frá og með morgundeginum. 

Nýja húsið er 40 cm breiðara en það eldra, að öðru leiti er það svo að segja alveg eins. Húsið er því um 80 fermetrar að stærð með öllum helstu þægindum, stórum palli og að sjálfsögðu er heitur pottur við húsið. Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi og í báðum er tvíbreitt rúm og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm en tvær efri eru eitthvað mjórri. Svefnpláss er fyrir átta manns. Eldhús og stofa eru í sama rýminu.

Fleiri myndir má sjá hér