Nýir kjarasamningar verslunar- og verkafólks undirritaðir

Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins og SGS, að undirrita samninginn fyrr í kvöld.
Björn Snæbjörnsson, formaður félagsins og SGS, að undirrita samninginn fyrr í kvöld.

Starfsgreinasambandið og fleiri aðilar undirritaði fyrr í kvöld nýjan kjarasamnings við Samtök atvinnulífsins. Á næstunni verður innihalds samningsins kynnt nánar innan aðildarfélaga sambandsins.

Helstu atriði nýrra kjarsamninga verslunar-, skrifstofu- og verkafólks:

  • Kjarasamningarnir gilda frá 1. apríl 2019 - 1. nóvember 2022
  • Krónutöluhækkanir - 17 þúsund kr. hækkun á öll mánaðarlaun 1. apríl 2019
  • Lægstu laun hækka mest - 30% hækkun á lægstu taxta
  • Aukið vinnustaðalýðræði með möguleika á verulegri styttingu vinnutímans (mestu breytingar í tæpa hálfa öld)
  • Eingreiðsla upp á 26 þúsund kr. sem kemur til útborgunar í byrjun maí 2019
  • Skilyrði sköpuð fyrir verulegri vaxtalækkun á samningstímanum
  • Skattbyrði hinna tekjulægstu lækkar um 10 þúsund kr. á mánuði

Almenn hækkun á mánaðarlaun fyrir fullt starf

  • 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 18.000 kr.
  • 1. janúar 2021 15.750 kr.
  • 1. janúar 2022 17.250 kr.

Kauptaxtar hækka sérstaklega 

  • 1. apríl 2019 17.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 24.000 kr.
  • 1. janúar 2021 23.000 kr.
  • 1. janúar 2022 26.000 kr.

Kjaratengdir liðir kjarasamninga hækka um 2,5% á sömu dagsetningum, nema um annað hafi verið samið.

Á árunum 2020-2023 komi til framkvæmda launaauki að gefinni ákveðinnar þróunar á vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Tenging við hagvöxt (hagvaxtarauki) tryggir launafólki hlutdeild í verðmætasköpuninni. Þetta ákvæði nýtist best þeim tekjulægri þar sem þessi hækkun fer af fullum þunga á taxtakaup og ¾ á önnur laun. Hagvaxtarauki getur hækkað taxtalaun um 3-13 þúsund á ári eftir því hvað verg landsframleiðsla á mann hækkar mikið á tímabilinu.

Lágmarkstekjutrygging fyrir fullt starf

  • 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði
  • 1. apríl 2020 335.000 kr. 
  • 1. janúar 2021 351.000 kr.
  • 1. janúar 2022 368.000 kr

Desemberuppót (var 89.000 kr. 2018)

  • 2019 92.000 kr.
  • 2020 94.000 kr.
  • 2021 96.000 kr.
  • 2022 98.000 kr.

Orlofsuppbót fyrir hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018)

  • 1. maí 2019 50.000 kr.
  • 1. maí 2020 51.000 kr.
  • 1. maí 2021 52.000 kr.
  • 1. maí 2022 53.000 kr.

Eingreiðslan kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót árið 2019 uppá 26.000 kr. sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019.

Forsendur kjarasamninganna eru eftirfarandi:

  1. Kaupmáttur launa hafi aukist á samningstímabilinu skv. launavísitölu Hagstofu Íslands.
  2. Vaxtir lækki verulega fram að endurskoðun samnings í september 2020 og haldist lágir út samningstímann.
  3. Stjórnvöld standi við gefin fyrirheit skv. yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna.

Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendunefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila.