Nýir kauptaxtar á almenna markaðinum

Þann 1. maí sl. tóku gildi nýir kauptaxtar fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum eftir samningi SGS og SA. Gildistími þeirra er frá 1. maí 2017 til 30. apríl 2018. 

Almenn hækkun er 4,5%

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf, fullar 173,33 unnar stundir á mánuði (40 stundir á viku), skulu vera sem hér segir fyrir þá starfsmenn sem eftir að 18 ára aldri er náð hafa starfað a.m.k. sex mánuði hjá sama fyrirtæki (þó að lágmarki 900 stundir):

  • Frá og með 1. maí 2017 kr. 280.000 á mánuði.
  • Mánaðarlega skal greiða uppbót á laun viðkomandi starfsmanna sem ekki ná framangreindum tekjum, en til tekna í þessu sambandi teljast allar greiðslur, þ.m.t. hverskonar bónus-, álags- og aukagreiðslur, sem falla til innan ofangreinds vinnutíma. Launauppbót vegna lágmarkstekjutryggingar skerðist ekki vegna samningsbundinnar launahækkunar vegna aukinnar menntunar sem samningsaðilar standa sameiginlega að.
  • Laun fyrir vinnu umfram 173,33 stundir á mánuði og endurgjald á útlögðum kostnaði reiknast ekki með í þessu sambandi.


Kauptaxtana má nálgast hér