Nýir kauptaxtar á almenna markaðinum

Taxtarnir taka gildi 1. febrúar nk.
Taxtarnir taka gildi 1. febrúar nk.

Þann 1. febrúar nk. koma til framkvæmda nýir kauptaxtar fyrir þá sem starfa á almenna markaðinum eftir samningi SGS og SA. Þessir kauptaxtar gilda frá 1. febrúar 2013 til og með 30. nóvember 2013. 

Launataxtar hækka um kr. 11.000 og almenn laun um 3,25% auk þess sem reiknitölur og föst álög hækka um 3,25%, en þó ekki lægra en 9 kr.

Þessar hækkanir þýða að lágmarkstekjur fyrir fullt starf (fullar 173,33 unnar stundir á mánuði/40 stundir á viku) hækka um 11.000 kr. og verða kr. 204.000.

Kauptaxtana má nálgast hér