Á heimasíðu ASÍ kemur fram að á vegum Samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga hefur verið tekið saman
mikið efni um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. Aðdragandi þess að ráðist var í þessa vinnu var vilji til þess að
stíga skref í átt til þeirrar vinnubragða sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum við undirbúning og gerð kjarasamninga.
Að samstarfsnefndinni standa fern heildarsamtök launafólks; ASÍ, BSRB, BHM og KÍ og vinnuveitendamegin SA, Samband íslenskra sveitarfélaga og
fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Skýrsluna má nálgast
hér.