Skýrslan Hæfni er grunnur að gæðum er komin út. Markmiðið með skýrslunni er að miðla sýn atvinnulífs og menntakerfis á nám í ferðaþjónustu þannig að sú sýn geti verið skólum og yfirvöldum leiðarljós í mótun mennta- og hæfnistefnu fyrir þessa mikilvægu atvinnugrein.
Starfsgreinasambandið tók þátt í vinnunni ásamt fulltrúum fyrirtækja, stéttarfélaga, skóla og annarra fræðsluaðila, auk fulltrúa ráðuneyta og stofnana. Góð þátttaka og mikill áhugi á verkefninu endurspegla vel þann metnað sem ríkir innan greinarinnar.
Skýrsluna má nálgast hér.