Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd

Í morgun var kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin var í formi fjarfundar sem streymt var í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnti skýrsluna og gerði grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum.

Meðal nýjunga í skýrslunni eru:

  • Launaþróun ASÍ félaga á almennum markaði er birt sundurliðuð eftir Starfsgreinasambandinu, félögum verslunarmanna, og iðnfélögum.
  • Breytingar á grunntímakaupi allra hópa er birt skipt eftir áhrifum vinnutímatímabreytinga og annarra launabreytinga.
  • Samsetning starfa er birt á eftir starfshlutfalli og vinnufyrirkomulagi (þ.e. vaktavinnu).
  • Fjallað er um laun fólks í hlutastörfum sem hlutfall af launum fólks í fullu starfi.
  • Allir launaþættir eru nú sundurliðaðir eftir konum og körlum.
  • Launastig og launaþróun á Íslandi er sett í alþjóðlegt samhengi.

Fundarstjórn var í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Haustskýrslan er þriðja skýrsla nefndarinnar, og stefnt er að því að skýrslunar verði tvær ár hvert – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn eru aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar. Á vefnum segir að það sé von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.